Sje nafn drottins Jesú Kristí blessað!
Halelúja!
(Svar:) Nú héðan af og að eilífu! Halelúja!
Ó þú eilífi guð, Ísraels trúfasti verndari, hvern aldrei syfjar! Vak þú yfir oss til verndar og blessunar bæði á nóttu og degi. Fyrirgef oss af miskunn þinni í Jesú nafni allar vorar yfirtroðslur; og unn oss undir skjóli og skugga þinnar miskunnar að lifa í þínum ótta og öðlast að síðustu eilífan fögnuð og gleði. Fyrir Jesúm Kristum þinn son, sem með þjer og heilögum anda lifir og ríkir einn sannur guð, blessaður, fraá eilífð til eilífðar.
(Svar:) Amen.