Fyrirsögn:
Busasöngur Menntaskólans í Reykjavík
Lagboði:
Lagið er eftir Árna Frey Gunnarsson
Höfundur:
Ýmsir, þar á meðal Sigurjón Jóhannsson
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Við vöknuðum í rauða bítið, klæddum okkur í kuflana uppúr 7:00 og vorum tilbúin, að mig minnir klukkan 7:30. Ég man að við vorum hvorki í skóm né sokkum (mjög mikilvægt atriði). Á slaginu 7:45 gengum við úr Amtmannsstíg, löturhægt, í beinni röð og kyrjuðum í fimmundarsöng:
„Farðu aftur heim til þín/ógeðslegi businn þinn./Þú ert ekki velkominn/ við ætlum að drepa þig.”
Þetta sungum við mörgum sinnum, þangað til að við vorum komin að tröppunum. Þegar fyrstu nemendurnir voru komnir á stjá hófst söngurinn með þessum texta:
Mögur nögum busabein,
blóð úr sárum vellur.
Forðum sól á skólann skein,
nú skuggi á hann fellur.
Bragð af blóði, kolsvört ský,
busar skull deyja.
Lömbin leika ekki á ný,
líflaus skulu þegja.
„Borðum lítil busabein!"
Blóðþyrstir við skrækjum.
Pyntum Ólaf, fláum Finn,
fossar blóð í lækjum.
Þessi söngur var raddaður í sópran, alt, tenór og bassa minnir mig. Mig minnir að við sungum þetta síðan á víxl eftir það. (þ.e. fimmundarsönginn þrisvar og "Mögur nögum.. einu sinni osfr.) þangað til klukkan var orðin 8:10. Maðurinn með ljáinn var með okkur. Hann átti alltaf að vera hávaxinn.