Sveinbjörn Egilsson. Ljósmyndin er tekin í Kaupmannahöfn árið 1850 laust eftir Pereatið. Þetta er með allra elstu ljósmyndum af Íslendingi.
Sveinbjörn Egilsson. Ljósmyndin er tekin í Kaupmannahöfn árið 1850 laust eftir Pereatið. Þetta er með allra elstu ljósmyndum af Íslendingi.
(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Sveinbjörn Egilsson (f. 1791. d. 1852) frá Innri-Njarðvík í Gullbringusýslu. Guðfræðingur, kennari, skáld, þýðandi og fyrsti rektor Lærða skólans í Reykjavík. Sveinbjörn var einn mikilvirtasti menntamaður Íslendinga fyrr og síðar, þýddi Kviður Hómers úr forngrísku yfir á íslensku og útbjó orðabók um íslenskt skáldamál (á íslensku og latínu), betur þekkta sem Lexicon Poeticum. Sveinbjörn var faðir Benedikts Gröndal yngri.
Kvæði Sveinbjarnar með þjóðlögum og öðrum sönglögum:
Bí bí og blaka - Upphaf: „Bí bí og blaka/ álftirnar kvaka." Sjá barnagælur
Eg el í rænu rúmi - Upphaf: „Eg el í rænu rúmi…”.
Ei fyrir dagsmorgni komanda kvíð - Upphaf: „Ei fyrir dagsmorgni komanda kvíð…”.
Ei glóir æ á grænum lauki - Upphaf: „Ei glóir æ á grænum lauki."
Endir bréfs eins - Upphaf: „Að endingu eg óska þér…”.
Fljúga hvítu fiðrildin - Upphaf: „Fljúga hvítu fiðrildin/ fyrir utan glugga." Sjá barnagælur og Dýravísur
Held eg sem helgan dóm - Upphaf: „Held eg sem helgan dóm…”.
Hvort þú hefir létta lund - Upphaf: „Hvort þú hefir létta lund…”.
Ó, ef þú vissir, elskan mín - Upphaf: „Ó, ef þú vissir, elskan mín." Sjá ástarljóð
Ritað með úri - Upphaf: „Úrið fylgir ört í stað…”.
Sá gumi líkur guðum er - Upphaf: „Sá gumi líkur guðum er…”. Sjá ástarkveðskap
Sumarkveðja - Upphaf: „Fósturjörðin fyrsta sumardegi/ fagna vildi börnum sínum með."
Vínið og stúlkan - Upphaf: „Kærustu minni og krúsarlá." Sjá drykkjuvísur og druslur.