Stefán Thorarensen (f. 10. júlí 1831. d. 26. apríl 1892) var prestur, skáld og manna söngfróðastur í sinni tíð. Hann fæddist á Stórhólshvoli í Hvolhreppi og nam fyrst hjá Gísla Jóhannessyni í Hjálmholti (síðar presti að Reynivöllum). Stefán nam síðar hjá Páli Melsted sagnfræðingi sem þá bjó að Brekku á Álftanesi. Stefán gekk í Lærða skólann árið 1847, fór síðan í Prestaskólann og vígðist 7. október 1857. Stefán var skáldmæltur, hann sat í sálmabókanefndunum 1867 og 1878 og þar lagfærði hann u.þ.b. 95 sálma.
Kvæði eftir Stefán: