(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Páll Jónsson Vídalín (f. 1667. d. 1727). Eitt besta skáld sinnar tíðar. Hann var sonur Jóns Þorlákssonar í Víðidalstungu. Páll var skólameistari í Skálholti árin 1690-1696 en seinna lögmaður. Hann ferðaðist með Árna Magnússyni til þess að kanna hagi Íslendinga og varð afraksturinn Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Páll skrifaði einnig Skýringar við fornyrði lögbókar þeirrar er Jónsbók kallast.
Kvæði eftir Pál Jónsson með lagboðum og þjóðlögum:
Gleð þig guðs sonar brúð - Upphaf: „?"
Refur og Úlfur - Upphaf: „Tóa og Úlfur tóku/ tal saman á grund." Lagboði: Stássmeyjarkvæði. Sjá Snót, bls. 234-238
Sá ljósi dagur liðinn er - Upphaf: „Sá ljósi dagur liðinn er/ líður að næturstund." Sunginn í tvísöng í gamla daga (lagið minnir á Álfmeyjakvæði)
Sjálfum sér næstur - Upphaf: „Sætan átti sjúkan mann…”.