(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Páll J. Árdal (f. 1. febrúar 1857. d. 24. maí 1930) var barnakennari og skáld á Akureyri. Fjölmörg ljóð eftir hann eru í Íslenskri söngbók.
Kvæði eftir Pál J. Árdal:
Fiskilækjarhverfi - Upphaf: „Ó, fagurt er í Fiskilækjarhverfi." Lag: líklegast Vísur Íslendinga. Sjá Þorrablótskvæði
Ísland - Upphaf: „Ó, sviptigna móðir, með silfurhár greitt." Sjá ættjarðarkvæði
Minni félagsins - Upphaf: „Að lifa glaður, lifa frjáls." Lagboði: Ó fögur er vor fósturjörð. Þetta kvæði var sungið á Þorrablótinu á Akureyri 26. janúar árið 1884. Sjá Þorrablótskvæði
Minni Íslands - Upphaf: „Ó, feðranna móðir, þú fjalldrottning sönn." Sjá ættjarðarkvæði
Minni Þórs 1885 - Upphaf: „Lifir Ása-Þór enn." Lagboði: Líklega fenginn úr Víkingabálki Friðþjófs sögu eftir Esaisas Tegnér, í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. Sjá Þorrablótskvæði
Minni Þórs 1893 - Upphaf: „Þursaskelfir, skrugguvaldur." Lag: Líklega norski þjóðsöngurinn. Sjá Þorrablótskvæði
Søngur á Þorrablóti 1894 - Upphaf: „Við tignum enn í ýmsu guða/ aldna sjót." Sjá Þorrablótskvæði