(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Látra-Björg (f. 1716. d. 1784), sem hét fullu nafni Björg Einarsdóttir, var íslensk flökkukona og skáld. Hún er kennd við bæinn Látra á Látraströnd sem er afskekkt sveit austan Eyjafjarðar. Hún flakkaði um sveitir landsins og þótti sveipuð dulúð og forneskju. Hún orti einkum kvæði af veraldlegum toga undir rímnaháttum, dróttkvæðum háttum og vikivakaháttum. Einu heimildir okkar um Látra-Björgu eru kvæðin hennar, munnmæli og þjóðsögur. Þekktasta kvæði Látra-Bjargar er vafalaust Fagurt er í fjörðum. Látra-Björg er af sumum kölluð drottning kraftaskálda.
Kvæði Látra-Bjargar með þjóðlögum
Fagurt er í fjörðum - Upphaf: „Fagurt er í fjörðum."
Æðir fjúk um Ýmisbúk - Upphaf: „Æðir fjúk um Ýmisbúk…”.