(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Bjarni Jónsson (f. 1709. d. 1790), betur þekktur sem Latínu-Bjarni, var skólapiltur í Skálholti og skáld. Hann bjó að Knerri í Breiðuvík (Rauðasandshreppi). Hann nam í Skálholtsskóla en var rekinn þaðan vegna „tornæmis." Var stundum kallaður Bjarni djöflabani eða Bjarni bani. Honum bregður fyrir í þjóðsögum og sagnaþáttum, einkum hjá Gísla Konráðssyni. Latínu-Bjarni hefur því orðið að hálfgerðri þjóðsagnapersónu í tímans rás.
Kvæði Latínu-Bjarna með íslenskum þjóðlögum:
Veisludiktur Bjarna Jónssonar læknis (Latínu-Bjarna) - Upphaf: „Historían ný til handa bar." Brúðkaupskvæði. Sjá einnig skólasöngva