Fyrirsögn:
Stúlkuvísur
Lagboði:
Höfundur:
Jón Thoroddsen (f. 1818. d. 1868).
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ástkæra auðarlín,
inndæla stúlkan mín,
blíðan af brúnum þín
bjartari geisla skín.
2. Af stjörnu öllum her,
augað sem tindra sér,
fjörug svo engin er,
að megi líkjast þér.
3. Yngismey ástúðlig
allan þú töfrar mig;
fyrir að faðma þig
fús hlypi eg dauðans stig.