Fyrirsögn:
Smalastúlkan
Lagboði:
Eldgamla Ísafold
Höfundur:
Jón Thoroddsen (f. 1818. d. 1868).
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Yngismey eina sá
ég þar sem falla blá
gil úr háhlíð;
léttfætt um leiti‘ og börð,
lautir og fjallaskörð
smalar og hóar hjörð
hringalind fríð.
2. Kvíarnar koma á
konur að mjalta þá,
seppi‘ á vegg sest;
kvíar og kannar mær
kindur en vantar tvær;
að fara‘ að elta þær
er þrautin verst.
3. Segðu það brúnablá,
brúður! Hvað skal sá fá,
féð þitt sem fann?
Alsveittur er hann hér,
ærnar hann færir þér;
verðug það virðist mér,
þú vel kyssir hann.