Fyrirsögn:
Reiðvísa
Lagboði:
Höfundur:
Jón Thoroddsen (f. 1818. d. 1868).
Kvæðagrein:
Hestavísur
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Smástjörnur leiptra um ljómandi hvel,
lækirnir niða og fossar;
skeiðfráu jóarnir skunda um mel,
úr skeifunum eldurinn blossar;
:,:vant nú einskis er,:,:
skemta vinir vel
á vegi mér,
og að vörum mínum dýrar veigar ber.