Titill:
Lagboði:
Höfundur:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Búðar í loftið hún Gunna upp gekk,
gráfíkjur nógar og sætabrauð fékk;
Sigríður niðri í búðinni beið,
bylti við ströngum og léreftin sneið.
2. Fagurt er loftið og fullt er það ull,
fáséð mun Kristján sýna þar gull;
og lengi var Gunna í loftsölum há,
og litverp í framan hún kemur þeim frá.
3. Síðan tók Kristján silki ágætt
(selja þeir þess háttar öðrum á vætt)
og hvíslar að Gunnu: „á herðarnar þín
hafðu hann fallegur stúlkurinn mín!“
4. Missæl er þjóðin! oss dónunum dýr
dropinn oft gjörist og varningur nýr,
en ókeypis stúlkurnar fallegu fá
fyrirtaks klútana Danskinum hjá.