Jón Helgason árið 1982
Jón Helgason árið 1982
(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Jón Helgason (f. 30. júní 1899. d. 19. janúar 1986) var handritafræðingur – og að lokum forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn – og skáld. Jón var mjög litrík persóna og eftirminnileg öllum þeim sem honum kynntust. Sem skáld er hann þekktastur fyrir ljóðabókina Úr landsuðri (útg. 1939) en ekki síður fyrir tækifæriskvæðin sem hann orti um menn og málefni sem að lokum fóru í dreifingu um allt land.
Jón fæddist að Rauðsgili í Hálsasveit, Borgarfirði. Hann lauk prófi í norrænum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla árið 1923 og árið 1926 varði hann doktorsritgerð sína við Háskóla Íslands. Viðfangsefnið var Jón Ólafsson frá Grunnavík skrifari Árna Magnússonar handritasafnara.
Kvæði eftir Jón Helgason prófessor:
Á hlíðarnar og móana - Upphaf: „Á hlíðarnar og móana slær haustsins fölva lit."
Á Rauðsgili - Upphaf: „Hugrökk teygist á háum legg."
Bifbrá - Upphaf: „Nú skyggir, og skarður máni."
Ef allt þetta fólk - Upphaf: „Ef allt þetta fólk fær í gullsölum himnanna gist."
Fljúg fugl, fljúg - Upphaf: „Fljúg fugl, fljúg yfir Furusjóinn sökkva."
Fornkvæði um riddarann Jónas - Upphaf: „Jónas axlar yfir sig skinn."
Gaudeamus - Upphaf: „Kætumst meðan kostur er."
Gluntinn sækir fyrirlestur - Upphaf: „Ég gekk í kennslu með klókri vél;"
Guðrækilegar umþenkingar við tóbaksreykingar - Upphaf: „Mér oft vill pípan hrjóta' úr hendi."
Hvar fæ eg Höfde hallad - Upphaf: „Eg sialldann vard til Sagna."
Jón Bygg - Upphaf: „En vorið kom með grösin græn."
Kondu' og sjáðu köttinn minn - Upphaf: „Kondu' og sjáðu köttinn minn."
Leiður á heimi, lystur til himins - Upphaf: „Hvers vert er það skrúð."
Lestin brunar - Upphaf: „Út í heim þú ferð að finna."
Páfi og soldán - Upphaf: „Og þó – sá hængur er þar á."
Rósarkvæði - Upphaf: „Piltur mælti: þig ég þríf."
Til Bárða - Upphaf: „Ja, nú fór í sannleika verr."
Útfararsálmur - Upphaf: „Hvert loforð vér lesum úr fræðum."
Þið stúdentsárin æskuglöð - Upphaf: „Hvar er hin djarfa unga sveit."
21sti söngur Fredmans - Upphaf: „Og þú sem allan hattinn ber."
23ðji söngur Fredmans - Upphaf: „Svei ykkar rúmi, svei hverju orði."