Unnur Benediktsdóttir Bjarklind (f. 6. ágúst 1881. d. 10. apríl 1946), betur þekkt undir skáldanafninu Hulda var landsþekkt skáld og afkastamikil en á ferli hennar gaf hún hún alls 18 ljóðabækur. Hún gaf einnig út fjölmörg ljóð í dagblöðum og tímaritum sem vöktu mikla athygli. Árið 1944 sendi Hulda ljóðið Hver á sér fegra föðurland í ljóðasamkeppni í tengslum við lýðveldishátíðina og hlaut hún 2. verðlaun. Ljóðin voru öll send undir dulnefni og er talið að dómnefndin hafi ætlað sér að veita Davíð Stefánssyni verðlaunin enda var ljóðið talið hans.
Hulda var frá Auðnum í Laxárdal.
Kvæði eftir Huldu:
Íslands minni - Upphaf: „Ísland, Ísland! Eg vil syngja." Sjá ættjarðarkvæði