Fyrirsögn:
Lagboði:
Höfundur:
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Já, láttu gamminn geisa fram
í gegnum lífsins öldur;
þótt upp þær stundum hefji hramm,
ei hræðstu þeirra gnöldur.
Sjá, hvílík brotnar bárumergð
á byrðing einum traustum,
ef skipið aðeins fer í ferð
en fúnar ekki' í naustum.
2. Og mundu, þótt í votri vör
þú vöknir fyrir sandi,
að bylgjur þær, sem brjóta knör,
þær bera þó að landi,
og stormur þurkar segl í svip,
þótt setji um stund í bleyti,
og — altaf má fá annað skip
og annað föruneyti.