Fyrirsögn:
Stormur
Lagboði:
Lag eftir Bjarna Þorsteinsson. Ss. I, 15.
Höfundur:
Hannes Hafstein (f. 1861. d. 1922)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ég elska þig stormur, sem geisar um grund
og gleðiþyt vekur í blaðstyrkum lund,
en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur
og bjarkirnar treystir, um leið og þú þýtur.
2. Þú skefur burt fannir af foldu og hól,
þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól,
og neistann upp blæs þú og bálar upp loga
og bryddir með glitskrúði úthöf og voga.
3. Þú þenur út seglin og byrðinginn ber
og birtandi, andhreinn um jörðina fer.
Þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur
og lífsanda starfandi hvervetna vekur.
4. Og þegar þú sigrandi um foldina fer,
þá finn ég, að þrótturinn eflist í mér.
Ég elska þig kraftur, sem öldurnar reisir.
Ég elska þig máttur sem þokuna leysir.
5. Ég elska þig, elska þig eilífa stríð,
með ólgandi blóði þér söng minn ég býð.
Þú alfrjálsi loftfari, hamast þú hraður.
Hugur minn fylgir þér djarfur og glaður.