(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Hallgrímur Jónsson Thorlacius (f. um 1680. d. 1736) var skólameistari í latínuskólanum á Hólum í Hjaltadal. Hann var sonarsonur Þorláks Skúlasonar biskups á Hólum (f. 1597. d. 1656). Hallgrímur gerðist síðar sýslumaður á Berunesi í Berufirði (Suður-Múlasýslu) árið 1711 og dvaldi þar til dauðadags.
Kvæði Hallgríms með þjóðlögum:
Kom ég út og kerling leit ófrýna - Upphaf: „Kom ég út og kerling leit ófrýna/ svo kátlega hún á mig tók að blína."
Berunes í Berufirði, Suður-Múlasýslu um miðja síðustu öld. Þessi hús standa enn
Þorlákur Skúlason (f. 1597. d. 1656) Hólabiskup var afi Hallgríms Jónssonar Thorlaciusar. Þessa útsaumsmynd gerði dóttir Þorláks, Elín Þorláksdóttir (f. 1638. d. 1726). Myndin er varðveitt í Þjóðminjasafninu