Dúðadurtskvæði er grýlukvæði eftir Hallgrím prófast Eldjárnsson á Grenjaðarstað (d. 1779). Lítið er vitað um Dúðadurt annað en það að hann var sonur Grýlu og Leppalúða og bróðir jólasveinnanna.
Fyrirsögn:
Dúðadurtskvæði
Lagboði:
Geng ég fram á gnípur (ath. ekki íslenskt þjóðlag eins og stendur á nótum. Lagið er erlent)
Höfundur:
Hallgrímur Eldjárnsson (d. 1779) prófastur á Grenjaðarstað
Kvæðagrein:
Grýlukvæði; Jólin; Sagnadansar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Mörg grýlukvæði og sagnadansar
Heimild/kvæðið á prenti:
Hlóðaeldhúsið á Grenjaðarstað. Á Grenjaðarstað bjó Hallgrímur Eldjárnsson prófastur (d. 1779) sem orti Dúðadurtskvæði
1. Hér er kominn Dúðadurtur
digur bæði og hár,
::bíður hann í bæjardyrum,
bröndóttur og grár::
2. Bíður hann í bæjardyrum,
bar hann þar fyrir mig.
::Hann spurði‘ eg að heiti;
Þá hrissti hann allan sig::
3. Hann spurði‘ eg að heiti,
því hafði hann ei fyrir séð;
::skældi hann sig og skrækti,
og skrafaði reiði með::
4. Skældi hann sig og skrækti:
„skrítilegt það er
::ef mig þekkir ekki,
alkunnugan þér::
5. Ef mig þekkir ekki
af honum föður mín,
::Leppalúða heitnum,
sem löngum kom til þín::
6. Leppalúða heitnum,
sem líkur er ég þó,
::og Grýlu móður minni,
sem með honum lengi bjó::
7. Og Grýlu móður minni,
sem margan krakkann fékk,
::bar hún belginn gráan
og bæja milli gekk::
8. Þá belginn bar hún gráan,
á bæ kom oft til þín,
::en aldrei nema illa
erindin gengu sín::
9. En aldrei nema illa
við aumingjann þér fór,
::þó hrini' í hærra lagi
hópurinn barna stór::
10. Þó hrini í hærra lagi
hann Eldjárn og hann Jón,
::Þorsteinn líka þótti bjóða
þjösnalegan tón::
11. Þorsteinn líka þótti
og þær systurnar hans,
::Snjálaug og hún Ólöf
þær slæman höfðu dans::
12. Snjálaug og hún Ólöf,
með snöktinu sín,
::passlegar þær þóttu
í poka móður mín::
13. Passlegir þóttu hennir,
og piltarnir þar í,
::en þú máttir ekki,
eyða hyski því::
14. En þú máttir ekki
af því neinu sjá,
::fáum fórst miður,
þá fátækum lá á::
15. Fáum fórst miður
við foreldrana mín;
::vona ég á tanganum
verði getið þín::
16. Vona ég á tanganum
verði þitt nafn
::ekki sem bjartast;
þú fæstum er jafn::
17. Ekki sem bjartast
þótt það sé þar;
::hingað kom ég áðan,
því hungraður ég var::
18. Hingað kom ég áðan,
ég hugsaði svo margt,
::ef hún Rósa ærist
og æpir svo hart::
19. Ef hún Rósa ærist
eins og talað er,
::best er þér að beina
barni þessu mér::
20. Best er nú að beina mér
og bæta svo þitt ráð,
::þó aldrei verði hið umliðna
alveg afmáð::
21. Þó aldrei verði hið umliðna
afskafið slétt,
::bætir þó talsvert,
að breyta síðan rétt::
22. Bætur tel ég góðar,
ef börnin fæ ég þrjú;
::ég trúi' ekki öðru en pokinn minn
taki það nú::
23. „Ég trúi helst þú farir með hann
tóman núna heim,"
::það hrópaði ég í bræði
yfir bolakarli þeim::
24. Ég hrópaði í bræði:
„Burt með þig, þitt svín;
::hugsaðu ei þú fáir
heilla börnin mín."::
25. Hélt hann niður af tanganum
og tautaði af móð,
::að brátt hann kæmi aftur
ef barna heyrði hann hljóð::
26. Svo kom hann aldrei aftur,
öll voru börnin góð;
::dvína þannig læt ég
mín Dúðadurts ljóð::