ÍFk númer:
ÍFk 47
VÓ númer:
VÓ 66
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Þernukvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Kristín unga klæðist með gull,
– ekki er dagur enn, –
hún á sér þernu flærðarfulla.
– Vel dansa vífin.
2. Kristín gár fyrir kónginn sinn.
– ekki er dagur enn, –
„Nú stár eg með barni þín."
– Vel dansa vífin.
3. „Sé það sveinbarn, fái eg það séð
– ekki er dagur enn, –
þar liggur þín æran við.
– Vel dansa vífin.
4. Sé það meybarn, vilji það lifa
– ekki er dagur enn, –
þá skal það í klaustur gefa."
– Vel dansa vífin.
5. Þá fyrir sól á fjöllum rauð
– ekki er dagur enn, –
Kristín þoldi þunga nauð.
– Vel dansa vífin.
6. Þegar að sól á fjöllum skein
– ekki er dagur enn, –
Kristín fæddi fríðan svein.
– Vel dansa vífin.
7. Kristín talaði þreytt af móð:
– ekki er dagur enn, –
„Hvör gjörir mínum herra boð?"
– Vel dansa vífin.
8. Þernan svaraði þarna:
– ekki er dagur enn, –
„Eg gef þín boðin gjarna."
– Vel dansa vífin.
9. Þernan fór sem boðin var
– ekki er dagur enn, –
og kemur í höll þar kóngurinn var.
– Vel dansa vífin.
10. Kóngurinn talar og varð við blíður:
– ekki er dagur enn, –
„Seg mér hvörninn Kristínu líður."
– Vel dansa vífin.
11. „Henni gengur vel sem má,
– ekki er dagur enn, –
hún hefur fætt eitt meybarn á.
– Vel dansa vífin.
12. Hún hefur fætt eitt meybarn á,
– ekki er dagur enn, –
það er líkt einum köldum ná.
– Vel dansa vífin.
13. Það er líkt sem kaldur nár
– ekki er dagur enn, –
eður ljótur steinn sem liggur í lá.
– Vel dansa vífin.
14. Heyrðu, kóngur, eg segi þér slíkt,
– ekki er dagur enn, –
það er þínum þræli líkt.
– Vel dansa vífin.
15. Mér er hún Kristínu illu kennd,
– ekki er dagur enn, –
hún væri betur á báli brennd."
– Vel dansa vífin.
16. Kóngurinn talar og varð við bráður:
– ekki er dagur enn, –
„Eg verð að finna Kristínu áður."
– Vel dansa vífin.
17. Kóngurinn gekk í hæga loft,
– ekki er dagur enn, –
hún Kristín unga svaf þar oft.
– Vel dansa vífin.
18. Kóngurinn lyftir upp klæði blá,
– ekki er dagur enn, –
Kristín unga undir lá.
– Vel dansa vífin.
19. Tók hún upp hið bjarta barn,
– ekki er dagur enn, –
lagði hún það á kóngsins arm.
– Vel dansa vífin.
20. Hann tók í hennar hægri hönd,
– ekki er dagur enn, –
festi frú og gaf henni lönd.
– Vel dansa vífin.
21. Snemma einn morgun sagði hann:
– ekki er dagur enn, –
„Þernan uppi á báli brann."
– Vel dansa vífin.