ÍFk númer:
ÍFk 42
VÓ númer:
VÓ 46
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Vilhjálms kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Lagið er glatað en nota má Kóngurinn ræddi við riddarann stíg
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Guttormur ríður sig
af þingunum heim,
úti stendur hún Vendilmón
og fagnar þeim.
– Öl segir allan vilja.
2. „Heill og sæll, Guttormur
bróðir minn,
hvur eru nú tíðindin
af þingunum þín?“
3. „Þau eru nú tíðindin
sem þér þykja verst
að dauður er hann Vilhjálmur
sem þig hefur fest.“
4. „So hafa mér draumarnir
gengið í ár
að ég mundi hann Vilhjálm
með lífinu sjá.“
5. „Vendilmón mín systir,
viltu þann mann
sem á allan hátt
sigla og róa kann?“
6. „Ekki vil eg þann mann
sem sigla og róa kann
því báran hún blekkir
so margan mann.“
7 .„Vendilmón mín systir,
viltu þann mann
sem á allan hátt
smíða kann?“
8. „Ekki vil eg þann mann
sem fyrir aflinum situr,
hann líkist svínum
og verður niðurlútur.“
9. „Vendilmón mín systir,
viltu þann mann
sem á allan hátt
syngja og kveða kann?“
10. „Ekki vil eg þann mann
sem syngja og kveða kann,
huglausu hjartanu
stýrir hann.“
11. „Vendilmón mín systir,
viltu þann mann,
Jón Stallarason
heitir hann?“
12. „Eigðu sjálfur
þinn stallarasvein,
so lengi sem ég lifi
þá réð ég mér ein.“
13. „Þú skalt ekki, Vendilmón,
ráða þér lengur,
þín biður aldrei
vaskari drengur,“
14. Guttormur stígur sig
á hallar gólf:
„Jón Stallarason,
festu Vendilmón.“
15. „Laust verði okkar
lófa traust,
gæfi það guð hann Vilhjálmur
kæmi heim í haust.
16. Laust verði okkar
lófatak,
gæfi það guð hann Vilhjálmur
kæmi heim í dag.“
17. Þar kom einn lítill drengur
hlaupandi í öll:
„Nú er ég vísari
en þið gjörvöll.
18. Ég sá sigla fimmtán skip
sunnan undir höll,
Vilhjálmur hinn þýski
hann á þau öll
19. „Ef það er satt
sem þú segir mér
fimmtán bú á Gautlandi
skal ég gefa þér.“
20. „Ef það er ekki satt
sem ég segi þér
þá láttu mig hanga
svo hátt sem þú sér.“
21. Vilhjálmur hinn þýski
með sinn bitra brand
fyrstan drap hann brúðgumann
þegar hann sté á land
22. Vilhjálmur hinn þýski
og hans festarfrú
gáfu þau sínum sögusveini
fimmtán bú.
– Öl segir allan vilja.