ÍFk númer:
ÍFk 5
VÓ númer:
VÓ 6
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Sætrölls kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Ekkert lag hefur varðveist við þennan sagnadans. Þó má syngja lagið „Krummi krunkar úti".
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Kóngurinn og drottningin
á þann sunnudag
héldu sínum skipunum
á það myrkva haf.
– Enginn veit til angurs fyrr en reynir.
2. Þegar að þau komu
á það myrkva haf
þá tók allan byrinn af
svo hvörgi gaf.
3. Þar komu upp loppur
og þar komu upp klær,
allt upp undir olnboga
loðnar voru þær.
4. „Hvörsu mikið rauðagull
ska eg gefa þér
ef þú lætur skipið
skríða undir mér?“
5. „Eg hirði ei um þitt rauðagull
né þitt brennda fé
og ekkert nema þann fríða svein
er situr þér á kné.“
6. Móðir tók sér gullkamb
og kemdi sveinsins hár
en með hverjum lokkinum
þá felldi frúin tár.
7. Þegar þau höfðu af hendi selt
þann unga svein
bruna tóku skipin
undir báðum þeim.
– Enginn veit til angurs fyrr en reynir.