ÍFk númer:
VÓ númer:
VÓ 54
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Systkina kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
Viðlag: Skipin liggja hér við sand,
þar er á fjöldi karla.
Dagur fagur prýðir veröld alla.
1. Jómfrú gekk til brunna,
– þar er á fjöldi karla, –
hún bleikir sinn hvítan tvinna.
– Dagur fagur prýðir veröld alla.
2. Bleikti hún sinn hinn hvíta fald,
þar kom riddari ríðandi í garð.
3. „Allt mitt rauðagull gef eg þér
ef þú vilt, frúin, lofast mér.
4. „Hvað skal eg minni móðurinni segja
ef hún sér mig rauðagull bera?“
5. „Segðu þú hafir fundið
undir einum lundi.“
6. „Sestu niður hjá mér,
ég skal segja þér sorgir.
7. Ég var fædd þegar haninn gól,
mín móðir dó þegar upp kom sól.
8. Þá mín var móðir moldu hulin
þá var hringt til föðurs sálar.“
9. „Ég það ekki vissi,
– þar er á fjöldi karla, –
að þú varst mín systir.“
– Dagur fagur prýðir veröld alla.