ÍFk númer:
VÓ númer:
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Spélof
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Reið eg fyrir glugga, sá eg þar inn,
– eflum við gleðina, –
sat þar frú með rauða kinn,
– í öðru sinni.
Gleðjum allir húsbóndann inni.
2. Önnur sat þar yngri hjá,
ekki leist mér miður á þá.
3. Þar sat þriðja þeim til móðs,
fögur sem lilja og skær sem rós.
4. Svo voru hennar augun skær
eins og væri stjörnur tvær.
5. Svo var hennar andinn sætur
ilma tók um hjartarætur.
6. Svo var hennar bringan breið
að standa máttu á haukar tveir.
7. Svo var hennar ermalín
eins og sól í heiði skín.
8. Svo var hennar höndin hrein
eins og fegursta fílabein.
9. Svo var hennar maginn mjúkur
eins og það væri silkidúkur.
10. Einn er löstur á sprundi,
– eflum við gleðina, –
að hún mígur undir.
– í öðru sinni.
Gleðjum allir húsbóndann inni.