ÍFk númer:
VÓ númer:
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Skrifta kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Kerlingar kindin hún hoppaði svo hátt,
– um sumarið, –
hún hoppaði upp á prestsins garð,
– svo langt fram á veturinn.
2. „Kæri minn prestur, skriftaðu mér,
níu laxhausa gef ég þér.“
3. „Ég kann ekki að skrifta þér
því prófasturinn er yfir mér.“
4. Kerlingar kindin hún hoppaði svo hátt,
hún hoppaði upp á prófasts garð.
5. „Kæri prófastur, skriftaðu mér,
níu laxhausa gef ég þér.“
6. „Ég kann ekki að skrifta þér
því biskupinn er yfir mér.“
7. Kerlingar kindin hún hoppaði svo hátt,
hún hoppaði upp á biskups garð.
8. „Kæri biskup, skriftaðu mér,
níu laxhausa gef ég þér.“
9. „Ég kann ekki að skrifta þér
því páfinn sjálfur er yfir mér.“
10. Kerlingar kindin hún hoppaði svo hátt,
hún hoppaði upp á páfans stól.
11. „Heilagi faðir, skriftaðu mér,
níu laxhausa gef eg þér.“
12. „Ég kann ekki að skrifta þér,“
– um sumarið, –
„nema þú gefir góðan grip,“
– svo langt fram á veturinn.