ÍFk númer:
VÓ númer:
VÓ 48
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Riddara kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Eg var úti snemma myrgins,
so skal kvæðið inna,
eg sá standa á víðum velli
háva borg og stinna.
2. Eg sá standa í borgar turni
eina lilju ljósa,
hún var so í allan hátt
sem hvör mann vildi kjósa.
3. Eg batt minn hest við eikitré
í einum stað so lágum.
Eg gekk mig í hæga loft
þar ríku frúrnar sváfu.
4. Eg gekk mig í hæga loft
og lét mig ekki saka,
lagði eg hönd á jómfrúr brjóst
og bað eg hana vaka.
5. Vaknaði sú hin ríka frú,
henni var fljótt til orða:
„Haf þig í burtu, ríkur drengur,
þú átt lífi að forða.“
6. „Eg vil upp í yðar sæng,
mitt eðla vífið bjarta,
og minnast við þitt mekta hold,
treysta hug og hjarta.“
7. Lögðust þau í sængina
með so mikinn þunga,
vaknaði við so sáran draum,
þau heyrðu í sverðum syngja.
8. Hann tók frúna sér í fang,
sverð með hægri hendi,
klýfur hann bjarta brynju blá
og rauðan skjöld út renndi.
9. Og so snart af skemmu fram,
enginn riddarinn festi,
fram á einum borgarturni,
náði hann sínu essi.
10. Eg hefi þar ekki á mót
öllu væri hann angri sviptur,
ætti hann fríða snót,
blómið ljóma lífs og vífs
og lifandi yndis rót.