Prestkonu kvæði er gamankvæði flokkað með sagnadönsum. Þetta er með allra yngstu sagnadönsum hér á landi og Íslendingar kynnast því einhvern tímann á 19. öld.
ÍFk númer:
X
VÓ númer:
VÓ 88
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Mörg pappírshandrit og munnleg geymd fram á þennan dag
Fyrirsögn á íslensku:
Prestkonu kvæði
Komumanns kvæði
Hér er kominn gestur
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Ísl. þjóðlag
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Maður kemur ríðandi,
– segir prestur –
Taktu hann af baki og bjóddu honum inn.
– segir prestsins kona.
2. Hvar á hann að sitja?
– segir prestur –
Í einum stól við hliðina á mér,
– segir prestsins kona.
3. Hvar á ég að sitja?
– segir prestur –
Á einu skammeli undir borð,
– segir prestsins kona.
4. Hvað á hann að borða?
– segir prestur –
Súpu og steik, súpu og steik,
– segir prestsins kona.
5. Hvað á ég að borða?
– segir prestur –
Roð og skófir, góðurinn minn,
– segir prestsins kona.
6. Við hvern á hann að dansa?
– segir prestur –
Við mig, við mig,
– segir prestsins kona.
7. Við hvern á ég að dansa?
– segir prestur –
Við eldabuskuna, góðurinn minn,
– segir prestsins kona.
8. Á hvað á hann að spila?
– segir prestur –
Fíólín, fíólín,
– segir prestsins kona.
9. Á hvað á ég að spila?
– segir prestur –
Vöfflujárnin, góðurinn minn,
– segir prestsins kona.
10. Hvar á hann að sofa?
– segir prestur –
Í einni sæng við hliðina á mér.
– segir prestsins kona.
11. Hvar á ég að sofa?
– segir prestur –
Út í hlöðu, góðurinn minn,
– segir prestsins kona.
12. Mýs og flærnar bíta mig,
– segir prestur –
Bíttu þær aftur, góðurinn minn,
– segir prestsins kona.
13. Það held ég fjandinn sé í þér,
– segir prestur –
Sé hann í mér, svo er hann í þér,
– segir prestsins kona.