ÍFk númer:
VÓ númer:
VÓ 83
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Pilturinn og stúlkan
Kvæði af pilti og stúlku
Vinnumaður og vinnukona
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Íslensk þjóðlög (2)
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Vinnumaður og vinnukona
töluðu sér til gamans:
„Hvurninn ætlarðu að fæða mig
þegar við tökum saman?"
2. „Ég skal taka mér staf í hönd
og ganga upp með á,
veiða margan smásilung
að fæða þig á."
3. „Hvurninn ætlarðu að fæða mig
ef fiskurinn vill ekki bíta?"
„Ég skal þá til bónda,
rífa korn og slíta."
4. „Hvurninn ætlarðu að fæða mig
ef bóndi á ekki korn?"
„Ég skal þá á smalaþúfu
blása hátt í horn
5. „Hvurninn ætlarðu að fæða mig
ef lúður vill ekki láta?"
„Ég skal þá á stræti
smíða skip og báta."
6. „Hvurninn ætlarðu að fæða mig
ef nagli vill ekki ganga?"
„Farðu þá til Óðins
og aflaðu þér þar fanga."