Marteins kviða er illa varðveittur sagnadans sem hefur einnig fundist í Danmörku (handritum frá 16. og 17. öld)
ÍFk númer:
ÍFk 40
VÓ númer:
VÓ 14
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Mörg pappírshandrit
Fyrirsögn á íslensku:
Marteins kviða
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Glataður. En má syngja með færeyska laginu við Finnur hin fríði
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Jungherra Marteinn
spurði sveina sín:
„Hvörnin skal eg úr ríkjum
lokka Lúsíu mín?“
–Þar þeir vinna sigur allt innan borgar.
2. „Leggðu þig á börur,
láttu sem þú sért deyð,
láttu öngan mannin vita
þér sé lífið með.“
3. Fimmtudaginn og föstudaginn
sóttina hann fekk,
laugardaginn um nónbil
kvikur á börurnar gekk.
4. Fréttist það um Danaveldi
og borgina Rem
að jómkæri Marteinn
væri sig líf úr heim
5. Út gengu þær klausturmeyjar
saman í einum skara
þegar þær sáu Marteins líki
að sínum garði fara.
6. Úti var messan,
frúrnar gengu sig heim
utan frúin Lúsía,
hún stár sig eftir ein.
7. Söng hún honum psaltara,
söng hún honum þá þrjá,
lifna tók þá Marteins líki
á börunum þar það lá.
8. „Heyrðu það, frúin Lúsía,
óttastu ekki mig.
Gangvari stendur á Vífils garð,
þreyir hann eftir þig.
9. Heyrðu það, frúin Lúsía,
þú óttast ekki stans.
Gangvarinn stendur á Fífils garð
og brynjað hundrað manns.“
10. Heyra má til hörpunnar
suður undir ey
þegar jómkæri Marteinn
flutti sína festarmey.
11. Út gengu þær klausturmeyjar
talaði hvör við sig:
„Gæfi það Guð í himnaríki
að englar sæktu og mig.“
–Þar þeir vinna sigur allt innan borgar.