ÍFk númer:
VÓ númer:
VÓ 89
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Konukaup
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Eitt sinn fundust þeir
Þorsteinn manni,
konuræfillinn
og hann Þorleifur skjanni.
2. „Hvað hefur þú á baki þér?“
– segir Þorsteinn manni. –
„Konutetrið mitt það er,“
– segir Þorleifur skjanni.
3. „Viltu nokkuð selja hana?“
– segir Þorsteinn manni. –
„Vel má það vera,“
– segir Þorleifur skjanni.
4. „Eru konur dýrar?“
– segir Þorsteinn manni. –
„Níu fyrir nýra,“
– segir Þorleifur skjanni.
5. „Ég skal fá þér gæru grá,“
– segir Þorsteinn manni. –
„Láttu fæturnar vera á,“
– segir Þorleifur skjanni.
6. „Ég skal fá þér sauðarhaus,“
– segir Þorsteinn manni. –
„Fullborguð er þessi taus,“
– segir Þorleifur skjanni.