ÍFk númer:
VÓ númer:
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Hústrúar kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Hústrú sat á bergi
– með tygin til, –
leit hún hjá sér hvergi
– að gjöra henni skil.
Lát hana leika sem hún vil.
2. Hún sá mann einn ríða,
riddarasoninn fríða.
3. „Gæfi það guð minn kæri
að minn biðillinn væri.“
4. Snemma um morguninn upp hún stóð,
þá var hún öngum manni góð.
5. Tekur hún fólk og setur í hring,
lyklakerfið gár í kring.
6. Sumum gaf hún eitt högg, sumum tvö,
hann geldi bóndi fékk vel sjö.
7. „Sæll kominn, biskup frændi,
geldan mann hef eg fengið.“
8. „Eg skal fá þér ungan mann
sem alla blíðu veita kann.“
9. Seint um morguninn upp hún stóð,
þá var hún hvörjum manni góð.
10. Tekur hún fólk og setur í hring,
eggjakistan gár í kring.
11. Sumum gaf hún eitt egg, en sumum gaf hún tvö,
en ungi bóndinn fékk vel sjö.
12. Öllum vildi hún nokkuð gefa
– með tygin til, –
geldan sló hún fast með hnefa.
– er eigi gjörði henni skil.
Lát hana leika sem hún vil.