ÍFk númer:
VÓ númer:
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Gyrðils kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Gyrðir vaknar vesæll og aumur,
– auðían, valdían, –
settist upp og sagði sinn draum.
– Seint koma þeir sekulum og remí.
Ess í dje og emm í bé,
óbí, nóbí, renere,
forsíón og remí.
2. „Eg sá eina stóra örn,
enga hafði eg á mér vörn.
3. Krækti hún klónum í mitt hold,
flaug hún með mig vítt um fold.
4. Flaug hún með mig langa tíð,
við komum að helli um síð.
5. Kastaði hún mér á hellisgólf,
brytjaði hún mig í stykkin tólf.
6. Brytjaði hún mig í stykkin stór,
síðan allt í ketilinn fór.
7. Sauð hún mig svo langa stund
að svíða tók mig sára und.
8. Færði hún mig svo síðan upp,
skar hún bita af mínum hupp.
9. Nú hefi eg sagt þér drauminn minn,
– auðían, valdían, –
ráddu hann, ráddu hann, vinur minn.“
– Seint koma þeir sekulum og remí.
Ess í dje og emm í bé,
óbí, nóbí, renere,
forsíón og remí.