ÍFk númer:
VÓ númer:
VÓ 82
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Giftingar hjal
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Dóttir spurði móður sín,
– þá hún var heima: –
„Hvort vill enginn biðja mín,
– til yndis greina,
láttu mig ekki lengur sofa eina."
2. „Viltu eg fái þér messuprest
sem ungum stúlkum þénar best?“
3. „Ei vil eg eiga þann messuklerk
því biskups völdin eru svo sterk.“
4. „Viltu að eg fái þér einn hagann mann
sem smíða allt og fella kann?“
5. „Ekki vil eg eiga þann inn haga mann,
hann gjörir sig jafnan kolugan.“
6. „Viltu að eg fái þér kotungsson
þér er aldrei framar von?“
7. „Ekki vil eg eiga þann úr kotinu fer,
hann kann öngva hegðun á sér.
8. Hofmannskvinnan vilda eg vera,
rauðan kyrtil skyldi eg bera.“
9. „Hofmaðurinn slær þig högg á kinn,
hann gjörir það oft um margt eitt sinn.“
10. „Hirði eg ei þó hofmaðurinn blaki smátt,
eg hefi svo marga yndisnátt.
11. Hirði eg ei þó hann slái mig fimm eður sex,
– þá hún var heima: –
skapið minnkar en heiðurinn vex,
– til yndis greina,
láttu mig ekki lengur sofa eina."