Kvæði af herra Birni og Ingigerði er sagnadans sem var vel þekktur hér á landi á 17. öld og í rauninni alveg fram á síðari hluta 19. aldar.
ÍFk númer:
ÍFk 48
VÓ númer:
VÓ 29
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Kvæði af herra Birni og Ingigerði
Elja kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Glatað. Bjarni Þorsteinsson kemur með tillögu að lagboða í Íslenzkum þjóðlögum (1906-1909) á bls. 519.
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Herra Björn og Ingigerður
töluðu þau sér gaman;
en í hæga loftinu
lágu þau bæði saman.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
2. „Hvörninn skaltu, Ingigerður,
una við þitt líf
ef eg fer í önnur lönd
að fastna mér víf?“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
3. „Annað hvort mun eg
lifa eða dey
þó þú farir í önnur lönd
og fastnir þér mey.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
4. Af því spurði hún Ingigerður
herra Björn þá:
„Hvör er nú sú voldugleg
að þinn stár hugurinn á?“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
5. „Engilborg heitir sú,
kóngsins barn,
hana vilda eg vefja
á mínum arm.·
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
6. Að því spurði hún Ingigerður
herra Björn sinn:
„Nær á eg að bera
mín gulli búin skinn“?
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
7. „Á morgun skaltu bera
þín gulli búin skinn,
ganga so glaðlega
fyrir brúðirnar inn.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
8. Ganga so glaðlega
fyrir brúðirnar inn,
nefnast frúin Margrét
systir mín.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
9. Troðið var þar organ
og slegið symfón
þá hún ríka Engilborg
ríður sig í tún.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
10. Silkið og pellið
var á bekkinn breitt
þá hún ríka Engilborg
var til sætis leidd.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
11. Að því spurði hún Engilborg
herra Björn sinn:
„Hvör skenkir mjöðinn
og það skíra vín?“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
12. „Það er hún frúin Margrét
systir mín,
hún skenkir mjöðinn
og það skíra vín.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
13. „Sé hún það frúin Margrét
systir þín
því falla henni so
tárin á kinn?
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
14. „Því falla henni
tárin á kinn,
hún þreyr eftir
festarmanninn sinn.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
15. „Þreyi hún eftir
festarmanninn sinn
giftu hana Knúti kóngi
kæra bróður mín.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
16. „Ég get ekki sannar
sagt þér í frá,
Knút bróður þinn
vill hún ekki sjá.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
17. Síðan aftnar,
rökkur fellur á,
herra Björn vill sig
til sængurinnar gá.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
18. Hún dró af þeim
gulli búinn skó,
óx henni harmur
um hjartað nóg.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
19. Hún breiddi yfir þau
það hvíta lín:
„Sofi þið með yndi,
hreppið aldrei pín.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
20. Seinast breiddi
hún pellið á:
„Sofið þið með yndi,
hreppið aldrei þrá.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
21. Að því spurði hún Engilborg
herra Björn þá:
„Hver er nú so voldugleg
að pellið breiðir á?“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
22. „Það er hún frúin Margrét
systir mín,
hún breiðir pellið
og það er hvíta lín.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
23. „Sé hún það frúin Margrét
systir þín
því falla henni
tárin á kinn?“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
24. „So falla henni
tárin á kinn
sem hún hafi eitthvört sinn verið
unnustan þín.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
25. „Eg get ekki dulið þig
fyrir vísdómnum þín.
Það er hún frúin Ingigerður
festarmærin mín.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
26. Hún gekk sig til svefnstofu,
heyrði að hún kvað:
„Hvort gjörir ríka frúin
sefur eða vakir?“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
27. Svaraði sú
hin ríka frú:
„Sofið hef eg til þessa
en vaki eg nú.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
28. Upp stóð hún Engilborg
af herra Bjarnar armi:
„Leggstu niður, Ingigerður,
linaðu þínum harmi.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
29. Allt það rauðagull
sem eg flutta með mér
það skal eg, frúin Ingigerður,
láta gefa þér.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
30. Það skal eg, Ingigerður,
láta gefa þér
og yndið hans
herra Bjarnar með.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
31. En so var hún Engilborg
úr höllinni út,
ekki náði hann herra Björn
í hennar skikkjuskaut.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
32. Þetta talar hún Engilborg,
hún rið sig undan tjaldi:
„Hvört barn lifir hér
í vors herra valdi.
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
33. „Sjö hef eg mönnunum
verið gift
en allar hafa mig eljurnar
yndinu svipt.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
34. hún reið sig úr hliði:
„Hvört barn lifir hér
í vors herra friði.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
35. Þetta talar hún Engilborg,
hún reið sig úr hliði:
„Hvört barn lifir hér
í vors herra friði.“
– Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.