ÍFk númer:
VÓ númer:
VÓ 59
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Bóthildar kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Býr einn bóndinn upp með á,
hann á sér þær dætur þrjár.
Lætur hann byrla og blanda.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
2. Blanda,
boð fyrir kóng að senda.
Boð fyrir kóng og alla hans menn.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
3. Alla hans menn.
Logi stallari kom þar inn.
„Heyrðu það, Pétur sölli minn.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
4. Sölli minn.
Giftu mér Bóthildi dóttur þín.“
„Það gjöri eg aldrei á meðan eg lifi.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
5. Meðan eg lifi
frú Bóthildi að eg þér gefi.“
Logi sínu sverði brá.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
6. Sverði brá,
minnilega til Péturs hjó.
„Hættu þig, Logi, högg ei mig.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
7. Högg ei mig,
frú Bóthildi eg þér gef.“
Vaknaði hún Bóthildur upp að hún sá.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
8. Upp að hún sá.
„Hvör er sá maður að hjálpa má?“
„Ég þori ekki að hjálpa þér.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
9. Hjálpa þér
því Loga sveinar halda mér.“
Frú Bóthildur hún vó þann mann.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
10. Vó þann mann.
Logi stallari heitir hann.
Settist hún í helgan stein.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
11. Helgan stein.
Bætti hún um fyrir öllum mein.
Bóthildur situr og heldur sinni trú.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.
12. Heldur sinni trú.
Hún gefst í klaustur með fimmtán bú.
Vendi eg mínu kvæði í kross.
– Því nú er hann einn staddur í þeim vanda.