Í hörðum stalli er jólakvæði úr Grallaranum. Til er upptaka af gömlum manni syngja þetta kvæði og er upptakan varðveitt í segulbandasafni Árnastofnunar (SÁM 87/1027F)
Fyrirsögn:
Í hörðum stalli
Lagboði:
Íslenskt sálmalag úr Grallaranum
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Í hörðum stalli hvílist sá,
hvílist sá,
hvers ríki aldrei endast má.
Hallelújá.
2. Í húsi uxa og asna þar,
asna þar,
eilífur drottinn fæddur var.
Hallelúja.
3. Vísir af austri færðu fé,
færðu fé,
fagurt gull, myrru og reykelsi.
Hallelúja.
4. Fæddur af móður meyju var,
meyju var;
manns völd engin komu til þar.
Hallelúja.
5. Ormsins spilling ei var á þeim,
ei var á þeim.
Af blóði voru barst í heim.
Hallelújá.
6. Hann líktist oss að holdsins mynd,
holdsins mynd,
hreinn og ójafn oss að synd.
Hallelújá.
7. Að oss með gæzku gerði hér,
gerði hér,
guði líka og sjálfum sér.
Hallelújá.
8. Á fæðingarhátíð frelsarans
frelsarans,
fagni og syngi kristnin hann.
Hallelújá.
9. Helgasta þrenning heiðruð sé,
heiðruð sé,
með hreinni trú og þakklæte.
Hallelújá.