Nú skal segja er jóladanskvæði sem sungið var á meðan dansað var í kringum jólatréð. Lagið er erlent. Kvæðið hefur ekki notið vinsælda í seinni tíð og þykir úrelt
Fyrirsögn:
Nú skal segja
Lagboði:
Erlent lag, líklega danskt
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Jólin; Jóladansar; Söngleikir
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlar telpur gera:
Vagga brúðu, vagga brúðu
– og svo snúa þær sér í hring.
2. Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlir drengir gera:
Sparka bolta, sparka bolta
– og svo snúa þeir sér í hring.
3. Nú skal segja, nú skal segja
hvernig ungar stúlkur gera:
Þær sig hneigja, þær sig hneigja
– og svo snúa þær sér í hring.
4. Nú skal segja, nú skal segja
hvernig ungir piltar gera:
Taka ofan, taka ofan
– og svo snúa þeir sér í hring.
5. Nú skal segja, nú skal segja
hvernig gamlar konur gera:
Prjóna sokka, prjóna sokka
– og svo snúa þær sér í hring.
6. Nú skal segja, nú skal segja
hvernig gamlir karlar gera:
Taka í nefið, taka í nefið
– og svo snúa þeir sér í hring.
AAAtsjúú!!!