Fyrirsögn:
Heiðra skulum vér herrann Krist
Lagboði:
Íslenskt sálmalag úr Grallaranum
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Heiðra skulum vér Herrann Krist.
Heims í fallinna barna vist
flekklaus hann mærin fæddi' um nátt.
Fagnandi syngja englar dátt:
Sé Drottni dýrð!
2. Son Guðs eilífur, sjáum vér,
sannur Guð, vafinn reifum er.
Jatan er fyrsta hælið hans, hans,
sem er athvarf syndugs manns.
Sé Drottni dýrð!
3. Móðurfaðmurinn felur hann,
fela veröld sem öll ei kann.
Hann er nú orðinn ungur sveinn,
öllum sem hlutum ræður einn.
Sé Drottni dýrð!
4. Ljósið eilífa lítum vér,
jóma' um gjörvallan heim sem ber.
Náttmyrkri ljósið lýsir í,
ljóssins vér gjörumst börn í því.
Sé Drottni dýrð!
5. Snauður kom hann í heiminn hér,
hans að miskunnar nytum vér,
auðguðumst fyrir fátækt hans,
fögnuðum arfleifð himnaranns.
Sé Drottni dýrð!
6. Fyrir allt, sem að oss hann gaf
óverðskulduðum kærleik af,
honum sé þökk af hjarta skýrð,
honum sé eilíft lof og dýrð.
Sé Drottni dýrð!