Fyrirsögn:
Fögur er foldin
Lagboði:
Danskt/Þýskt, frá Slésvík
Höfundur:
Matthías Jochumsson (f. 1835. d. 1920)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Fögur er foldin,
heiður er Guðs himinn,
indæl pílagríms ævigöng.
Fram, fram um víða
veröld og gistum
í Paradís með sigursöng.
2. Kynslóðir koma,
kynslóðir fara,
allar sömu ævigöng.
Gleymist þó aldrei
eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.
3. Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng , er aldrei þver:
Friður æa foldu,
fagna þú, maður,
frelsari heimsins fæddur er.