Þessi kveðlingur er drusla, tekinn úr ritinu Úr byggðum Borgarfjarðar eftir Kristleif Þorsteinsson frá Stóra-Kroppi (f. 1861. d. 1952)
Fyrirsögn:
Í Babýlon við Eyrarsund
Lagboði:
Sjá: https://ismus.is/erindi/2507 og Bjarna Þorsteinsson 1906, bls. 640
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Í Babýlon við Eyrarsund,
ævi vér dvöldum langa.
Eyddist oss féð á ýmsa lund
og réð til þurrðar ganga.
Loksins í húsið hjástoðar
hengdum vér sparibrækurnar,
því oss tók sárt að svengja.
Þeir innbyggjarar í þeim stað,
sem oss höfðu svo margsnuðað,
hótuðu oss að hengja.