Fyrirsögn:
Kalt er litlu lummunum
Lagboði:
Íslensk kvæðalög
Höfundur:
Ókunnur. Margir höfundar
Kvæðagrein:
Barnagælur; dýravísur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Alls konar ferskeytlur
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Kalt er litlu lummunum
líkna vill þeim enginn
pabba er hlýtt á höndunum,
hann skal verma drenginn.
2. Farðu að sofa fyrir mig,
fyrst þú mátt og getur;
ég skal breiða ofan á þig
ofurlítið betur.
3. Og ekki þarna inn
þó það væri gaman,
stóri rússi, strákurinn
stangar mig í framan.
4. Bítur upp á bænum enn
býsna stór með hornin sín,
hrúturinn sem hræðir menn,
hann er á litinn eins og svín.
5. Blágrá mín er besta ær,
ber hún af öllum kindunum.
Ég sá hana efst í gær,
upp á fjallatindunum.