Sphero

Sphero er lítill og nettur forritanlegur róbóti með marga möguleika, með Sphero er hægt að leysa spennandi verkefni sem efla stærðfræði-, verk- og rökhugsun samhliða því að byggja upp hæfileika eins og sjálfstraust og samskipta- og forystuhæfni.

Það er hægt að nota legókubba til að byggja í kringum vélmennið sem eykur möguleikana á skapandi vinnu mikið. Hægt er að fá hulstur utan um Sphero sem ver hann fyrir óhreinindum og hnjaski og gefur möguleika á að hægt sé að fara með hann út eða jafnvel mála með honum.

Smáforritin

Sphero Edu

Sphero Edu

Sphero Edu er smáforritið sem mest er notað í skólum fyrir Sphero róbótana.

Með Sphero Edu er hægt að forrita með því að teikna, nota blokkarforritun og fyrir lengra komna að forrita með forritunarmálinu JavaScript.

Sphero Edu er hannað bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Sphero Play

Sphero Play

Sphero Play smáforritið virkar með Sphero Mini, SPRK +, Sphero 2.0, SPRK Edition og BOLT róbótunum.

Í smáforritinu er hægt að stjórna róbótunum á fjölbreytta vegu, t.d. með því að nota stýripinna, halla spjaldtölvunni og nota röddina. Með Sphero Mini er einnig hægt að nota svipbrigði.