Í forritun vinna börn með stærðfræði og rökhugsun, hægt er að nota vélmenni á borð við Blue-bot eða Cubetto (sem einnig er fjallað um á þessari síðu) til að gera stærðfræðinámið áþreifanlegt og skemmtilegt. Í gegnum verkefnavinnu og leik með róbóta eflist talna- og hugtakaskilningur barna og skilningur þeirra á rými og mælingum. Börnin fá tækifæri til að nýta stærðfræði á hagnýtan hátt, bregðast við aðstæðum og beita rökhugsun til að leysa vandamál.
Leikur með róbóta veitir kennurum tækifæri til að koma af stað markvissri umræðu um stærðfræðihugtök, umræðuna má tengja inn í leik barna bæði í leik- og grunnskólum og útskýra hugtökin á sjónrænan hátt.
Allur leikur og verkefnavinna með Blue-bot byggir á talningu og talnaskilningi. Börnin velta fyrir sér hvert bjallan er að fara, velja bestu leiðina, telja og raða saman þeim skipunum sem þau telja að henti best. Mikilvægt er að skipanirnar fari inn í réttri röð. Þetta er grunnurinn í forrituninni, að átta sig á hvað við viljum að forritið okkar geri og raða upp skipunum þannig að það virki. Eftir því sem hæfni barnanna í forritun eykst er hægt að gera lengri forrit.
Það skemmtilegasta í þessari vinnu er að oftast er hægt að leysa vandamálin á fleiri en einn veg. Verkefnin bjóða því upp á fjölmörg tækifæri til samvinnu og umræðna í barnahópnum.
Verkefnunum hér fyrir neðan er unnið með mælingar. Það er áhugavert að mæla hversu langt Blue-bot fer í einni skipun. Einnig er hægt að skoða hversu margar skipanir þarf til að Blue-bot komist ákveðna leið.
Þegar börnin hafa komist að því hversu langt Blue-bot fer í einni skipun er auðvelt að nota upplýsingarnar til að búa til þrautabrautir, spil og heima fyrir róbótann. Vinna með mælingar getur verið mjög áhugaverð fyrir börn á elstu deild leikskóla og á yngsta stigi grunnskólans.
Skilningur á hugtökum er gríðarlega mikilvægur. Að kunna, skilja og geta notað hugtök tengd tölum og stæðfræði sem og óhlutbundin hugtök á borð við staðsetningar- og afstöðuhugtök skiptir miklu máli í öllu námi og daglegu lífi. Því er mikilvægt að nota hugtökin sem oftast í leik og starfi með börnunum, skapa tækifæri til þess að þau noti þau sjálf, rifja reglulega upp og nota endurtekningu í gegnum leik til að festa þau í minni.