Spákúlan
Dot segir til um framtíðina!
Dot segir til um framtíðina!
Langar þig að skyggnast inn í framtíðina?
Í þessu verkefni forrita nemendur Dot til að spá fyrir um framtíðina. Verkefnið hefur notið mikilla vinsælda hjá nemendum sem hafa heimsótt Miðstöð skólaþróunar og mælum við með því fyrir nemendur á öllum aldri.
Þetta er frábært verkefni fyrir hópefli.
Markmið
Markmið
Að nemendur:
- þjálfist í forritun
- þjálfist í samvinnu
- þjálfist í að vinna með tungumálið - spurningar opnar/lokaðar
Undirbúningur
Undirbúningur
- Spjaldtölvur fullhlaðnar
- Dot sé fullhlaðin
- Skipta nemendum upp í hópa
- Upprifjun á því hvernig við búum til skipanir og röðum þeim saman
- Upprifjun á því hvernig við tökum upp hljóð fyrir róbótana
- Upprifjun á því hvað felst í opinni/lokaðri spurningu
Umræðupunktar
Umræðupunktar
- Ræða hvað felst í hugtakinu samvinnu
- Er hægt að spá fyrir um framtíðina?
- Er eitthvað að marka framtíðarspár?
- Þekkjum við einhverjar frægar spákonur eða spámenn?
- Hver Völvan og hvaða spádóma setur hún fram?
Áskorun - Dot segir til um framtíðina
Áskorun - Dot segir til um framtíðina
- Forritið Dot til að segja til um framtíðina
- Ákveðið hvað þarf að gera til að Dot svari (t.d. er hægt að hrista hana)
- Lesið inn 10 svör, 5 jákvæð og 5 neikvæð, svörin þurfa að vera þannig að passi við lokaðar spurningar, t.d. já, nei, kannski, ekki séns, pottþétt o.s.frv.)
- Kveikið á forritinu og spyrjið Dot spurninga um framtíðina, spurningarnar þurfa að vera lokaðar, þ.e. spurningar sem hægt er að svara með jái og neii, t.d. fer ég til útlanda í sumar? Verður gaman á morgun?
Gaman er að láta kúlurnar ganga á milli hópa og fá þannig óvænt svör við spurningunum um framtíðina.
Fyrir þá sem klára snemma:
- Bætið ljósum og hljóðum við forritið þannig að spákúlan líti vel út og grípi athygli
- Látið Dot velta svarinu fyrir sér með því að forrita hljóð tengd umhugsun inn í forritið, t.d. hummmmmm (ef Dot er hallað til t.d. hægri eða vinstri)
Hugmyndir og ábendingar
Hugmyndir og ábendingar
- Það er alltaf gaman að byrja kennslustundina á forritunarleik þar sem nemendur forrita hver annan, þá eru tveir eða fleiri nemendur saman, annar framkvæmir forritið en hinn forritar. Markmiðið getur t.d. verið að komast frá einum stað á annan. Forritið má búa til með því að skrifa skipanir á blað, t.d. með því að nota örvar, liti eða myndir. Einnig er hægt að setja skipanirnar fram munnlega.