Örugg notkun upplýsinga og samfélagsmiðla
Internetið, farsímar og samfélagsmiðlar geta verið uppspretta óvelkominnar kynferðislegrar athygli.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
sýnt dæmi þess hvernig internetið, farsímar og samfélagsmiðlar geta verið uppspretta óvelkominnar kynferðislegrar athygli.
greint frá því að til eru leiðir til að vinna úr óvelkominni kynferðislegri athygli sem kemur í gegnum internetið, farsíma eða samfélagsmiðla.
ræktað með sér og leikioð eftir leiðir til að gæta eigin öryggis við notkun internetsins, farsíma og samfélagsmiðla.
Kynferðislegt myndefni geta verið kynferðislega örvandi og á sama tíma getur það skapað óraunhæfar kröfur til kynferðislegrar hegðunar og líkamsímyndar.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
skoðað og rætt hví kynferðislegt myndefni (klám) er svo algengt.
lýst því hvernig kynferðislgt myndefni geti verið skaðlegt og hvert beri að tilkynna slíkt og leita aðstoðar.
greint frá því að það er ólöglegt að deila myndefni af einstaklingum undir 18 ára, taka á móti slíku, kaupa eða eiga í fórum sínum slíkar myndir.
greint frá mikilvægi þess að þekkja lög landsins hvað varðar að deila eða eiga kynferðislegt myndefni.
deilt skoðunum sínum á kynferðislegu myndefni.
greint frá því hvernig kynferðislegt myndefni eins og klám ýti undir skaðlegar staðalímyndir kynja og kynhneigða ásamt því að draga undan alvarleika ofbeldis og að fá ekki samþykki.
endurspeglað með orðræðu hvernig kynferðislgt myndefni hefur haft áhrif á sjálfsmynd, sjálfsöryggi, sjálfsvitund og sjálfsímynd sína og annarra, út frá óraunhæfri birtingarmynd kynjanna og kynferðislegrar hegðunar í slíku myndefni.