Skuldbinding og foreldrahlutverkið
Langtíma samböndum og hjónaböndum fylgja margvísleg hlutverk og skyldur.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
dregið saman megin ábyrgðarhlutverk (skyldur) sem felast í langtíma samböndum eða hjónaböndum.
greint frá mikilvægi ástar, umburðarlyndis, jafnræðis og virðingar í samböndum og hjónaböndum.
Einstaklingar geta orðið foreldrar á margvíslega vegu og foreldrahlutverkinu fylgir margþætt ábyrgðarhlutverk.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
sagt frá því hvað felist í foreldrahlutverkinu
borið saman þær leiðir sem geta orðið til þess að einstaklingur verði foreldri (t.d. plönuð og óplönuð þungun, ættleiðing, taka barn í fóstur, staðgöngumæðrun, glasafrjóvgun).
greint frá mikilvægi þess að allir einstaklingar eigi að geta ákveðið sjálfir hvort þeir vilji verða foreldri (óhað fötlun, heilsu (t.d. með HIV), fjárhagsstöðu o.fl.).
sagt frá ýmsum ástæðum þess að einstaklingar vilja ekki verða foreldrar.
Börn hafa margvíslegar þarfir sem foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á að uppfylla
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
lýst þeim líkamlegu, tilfinningalegu, fjárhagslegu og heilsufarslegu þörfum sem barnið hefur ásamt menntun, sem foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á.
lýst því hvernig heilsa og vellíðan barnsins geti orðið fyrir áhrifum af erfiðleikum í sambandi foreldranna.
sýnt skilning á mikilvægi heilbrigðs sambands milli foreldra.
rökrætt eigin líkamlegu, tilfinningalegu, fjárhagslegu og menntunarlegu þarfir frá foreldrum/forráðamönnum sínum.
Barnagiftingar (CEFM : Child, early and forced marriages) og óplanaðar þunganir geta leitt til neikvæðra félagslegra og heilsufarslegra afleiðinga.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
lýst þeim samfélagslegu og heilsufarslegu afleiðingum sem hljótast af barnagiftingum (CEFM) og óplanaðra þungana.
borið kennst á þau skaðlegu áhrif sem hljótast af CEFM og óplanaðra þungana.
sagt til um hvert megi leita ef þungun á sér stað án ásetnings.