Samfélagsleg kyn og kynjaviðhorf
Kynjahlutverk og samfélagsleg viðhorf til kynjanna getur haft áhrif á líf fólks
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
borið kennsl á hvernig samfélagsleg viðhorf gagnvart kynjunum geta mótað eigin sjálfsmynd, löngun og hegðun einstaklinga.
skoðað hvernig staðalímyndir kynjanna geti verið skaðlegir og haft neikvæð áhrif á ákvarðanir og hegðun einstaklinga.
áttað sig á að hugmyndir manna um kyn, kynvitund og kynhneigð eru samfélagslega skapaðar hugmyndir.
gert grein fyrir því að hlutverk kynjanna og væntingar til kynjanna geta tekið breytingum.
beitt aðgerðum til að vinna að jákvæðari kynjahlutverkum og viðhorfum til þeirra, innan heimilis, skóla og samfélagsins.
Rómantísk sambönd geta orðið fyrir neikvæðum áhrifum af kynjahlutverkum og staðalímyndum kynjanna.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
skoðað og greint hvaða áhrif kynjahlutverk og staðalímyndir kynjanna geta haft á rómantísk sambönd (bæði hvað varðar karmennsku og kvenleika).
komið með dæmi þess hvernig ofbeldi innan sambanda getur tengst sterklega kynjahlutverkum og staðalímyndum kynjanna.
greint frá þeim skaðlegu áhrifum sem kynjahlutverk og staðalímyndir geta haft á sambönd.
dregið í efa þau kynjahlutverk og þær staðalímyndir kynjanna sem birtast í samböndum.