Mannréttindi og kynferði
Mannréttindi ná yfir réttindi sem hafa áhrif á kynferði og kynheilbrigði einstaklingsins.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
sagt frá þeim mannréttindum sem hafa áhrif á kynferði og kynheilbrigði.
rætt við samnemendur um þau landslög sem hafa áhrif á þessi réttindi.
borið kennsl á þegar þessi réttindi eru brotin.
greint frá því að sumir samfélagsþegnar eru í áhættuhópi yfir að brotið sé á mannréttindum þeirra.
sýnt virðingu gagnvart mannréttindum allra einstaklinga, óháð uppruna, kyni, kynferði, kynhneigð o.fl.
Í lögum landsins og alþjóðlegum sáttmálum eru atriði sem koma inn á réttindi einstaklinga er tengjast kynferði og kynheilbrigði.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
greint og skoðað landslög og alþjóðlega sáttmála sem snerta barnabrúðkaup (CEFM), umskurð kvenna og karla, sjálfræðisaldur, samræðisaldur, jafnrétti kynja, kynhneigð, fóstureyðingu, nauðgun, kynferðislegt ofbeldi, mansal og annað sem tengist kynheilbrigði.
borið kennsl á þegar þessi réttindi eru brotin.
talað fyrir landslögum sem snúa að mannréttindum einstaklinga, sér í lagi þeirra laga sem snúa að kynferði, kynheilbrigði og kynhneigð.
Það er mikilvægt að þekkja og koma mannréttindum á framfæri er snerta kynferði og kynheilbrigði.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
skoðað leiðir til að koma á framfæri málefnum mannréttinda meðal vina, fjölskyldu, skóla eða nærsamfélags.
sagt frá því af hverju mikilvægt er að koma á framfæri mannréttindum, sér í lagi þau sem snúa að kynheilbrigði, samþykki, mismunun og ofbeldi.
komið á þessum mannréttindum á framfæri.