Samskipti, synjun og samningafærni
Góð og markviss samskipti eru mikilvæg í persónulegum, félagslegum og rómantískum samböndum og innan fjölskyldna.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
listað upp kosti þess að eiga í góðum og markvissum samskiptum við vini, fjölskyldu, kennara og aðra í kringum sig.
greint möguleg vandkvæði sem geta skapast af samskiptum og samskiptaleiðum (bæði með og án orða) sem stangast á.
borið kennsl á þá þætti sem geta staðið í vegi fyrir því að samkomulag náist milli einstaklinga sem eru í sambandi (þar á meðal kynhlutverk og væntingar).
sýnt frá á getu til að nýta markvissa samningatækni og samræðufærni.
Skilvirk samskipti eru lykillinn að því að tjá persónulegar þarfir og kynferðisleg mörk.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
útskýrt ástæðu þess að öruggt kynlíf og samþykki byggir á skilvirkum og góðum samskiptum.
gefið dæmi um hvernig samþykki er gefið í nánum samböndum og/eða kynlífi.
lýst skilvirkum samskiptum og tjáningaleiðum til að tjá eigin þarfir og mörk (kynferðisleg og önnur mörk).