Kynþroskinn

Kynþroski er merki breytinga á getu einstaklings til að fjölga sér.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • lýst því hvað kynþroski felur í sér með tilliti til þroska kyn- og æxlunarfæra.

  • greint frá þeim megin líkamlegu og tilfinningalegu breytingum sem eiga sér stað á kynþroskaskeiðinu.

  • lýst leiðum sem hægt er að fara til að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um kynþroska.

Á meðan kynþroska stendur er mikilvægt að huga að hreinlæti og heilbrigði kynfæranna.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • lýst hvernig gæta megi að persónulegu hreinlæti.

  • áttað sig á mikilvægi þess að gæta að persónulegu hreinlæti.

  • yfirfært skilning sinn á hreinlæti yfir á eigið líf og lýst því hvernig nemandinn sjálfur stuðlað að eigin hreinlæti.

Að fara á blæðingar er eðlilegur og náttúrulegur þáttur þeirra líkamlegu breytinga sem stúlkur upplifa á kynþroskaskeiðinu.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • lýst tíðarhringnum og greint frá þeim líkamlegu og tilfinningalegu einkennum sem stúlkur geta upplifað vegna tíðarhringsins.

  • lýst þeim leiðum sem hægt er að fara til að nálgast, nota og henda þeim vörum sem nýtast við blæðingar (t.d. dömubindi, túrtappar, álfabikarinn o.fl.)

  • greint frá því hvernig misrétti kynjanna geti haft áhrif á tilfinningar stúlkna gagnvart blæðingum (t.d. skömm eða hræðsla gagnvart blæðingum).

  • rætt mikilvægi þess að allar stúlkur hafi aðgang að túrvörum, hreinni salernisaðstöðu og hreinu vatni þegar þær eru á blæðingum.

  • rætt hvernig megi stuðla að jákvæðri upplifun stúlkna gagnvart blæðingum.

Á kynþroskaskeiðinu geta ungmenni upplifað ýmis líkamleg viðbrögð (t.d. ris á hinum ýmsu tímum dags, blautir draumar og kynferðislegar hugsanir).

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • sýnt skilning á því að ungir menn upplifa standpínu, bæði vegna örvunar eða jafnvel án nokkurrar ástæðu, og það er eðlilegt.

  • sýnt skilning á því að ungmenni geti mögulega upplifað kynferðislega örvun á næturna, þ.e. blauta drauma, og það er eðlilegt.

  • greint frá því að það er eðlilegur hluti af kynþroskanum að upplifa ris, blauta drauma eða önnur kynferðisleg viðbrögð.