Fordómar og mismunun sem er byggt á fjölbreytileika einstaklinga (t.d. heilsufar, sjúkdómum (t.d. HIV), fjárhagslegri stöðu, uppruna, kynþátt, trú, kyni, kynhneigð, kynvitund eða öðrum þáttum) lýsir virðingaleysi og vinnur gegn vellíðan einstaklinganna og brýtur gegn þeirra mannréttindum.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
lýst því hvað felist í mismunun, fordómum, útilokun, hlutdrægni og þröngsýni.
skoðað afleiðingar fordóma og mismununar byggða á kynvitund, kynhneigð eða kynheilsu einstaklinga.
sagt frá þeirri ábyrgð sem einstaklingar bera til að styðja við þá sem verða fyrir fordómum og mismunun.
skilið það mikilvægi sem felist í að dæma ekki aðra né mismuna.
sagt til um hvert megi leita ef maður verður sjálfur fyrir fordómum eða mismunun.
æft/sýnt hvernig megi tala fyrir fordómaleysi og virðingu fyrir fjölbreytileikanum.